160 kVA Cummins/Stamford rafstöðin okkar er sannarlega flaggskipið eins og stendur. Sérhönnuð fyrir okkur og kemur í sérsmíðuðum gám sem hægt er að setja niður hvar sem er. Nægt pláss er í kringum vélina til viðhalds og þrifa og vel vítt til veggja. Allur gámurinn er varma og hljóðeinangraður. Vélin kemur með 400 A ATS búnaði (sjálfvirkur netskiptir) og getur þá ræst sjálf við rafmagnsleysi. Sjálfvirkar loftunarlúgur eru á gámnum og opnast þær þegar vélin fer í gang. Tvær gönguhurðar eru á hliðum gámsins og svo er hægt að opna sjálfar gámahurðarnar á gaflinum. Ljós og rafmagnsofn eru í gámnum og allt til alls. Hér hefur verið hugsað fyrir öllu! Stærri býli, ferðaþjónustuaðilar, verktakar, veitur ofl geta nýtt þessa almennilega.
Vél:
Framleiðandi: Cummins
Tegund: 6BTAA5.9-G12
Slagrými: 5.9 lítrar
Eldsneyti: Dísill
Afl stöðugt: 140 kW
Afl skammtíma: 155 kW
Fjöldi cylindra: 6
Gangráður: Rafrænn (G12)
Startari: 24V
Þyngd: 411 kg
Kæling: Vatnskæld
Raðnúmer: S014079
Vélanúmer: 93521785
Framleiðsludagsetning: 9/2025
Gæðastaðall: ISO9001
Framleiðsluland: Kína – Xiangyang, Hubei
Rafali:
Framleiðandi: Stamford
Tegund: UC.127 4F14
Raðnúmer: X25J421412
Afl stöðugt: 160 kVA
Afl skammtíma: 175 kVA
Einangrunarflokkur: H
Varnarflokkur: IP23
Spenna: 230/400V
Tíðni: 50 Hz @ 1500 rpm
Fasar: 3, 4 víra kerfi
Segulmögnun: Kolalaus, sjálfvirkt AVR
Framleiðsludagsetning 11/2025
Þyngd: 530 kg
Framleiðsluland: Kína - Jiangsu, Wuxi
Stýring:
Framleiðandi: Smartgen
Tegund: HGM6120N
Hýsing:
Rafstöðin er hýst í sér smíðuðum gám sem er einangraður í hólf og gólf. Mikið var lagt upp úr hljóðeinangrun og er innri klæðning gámsins úr mjög hljóðeinangrandi efni. Loftun vélarinnar fer fram í gegnum tvær rafdrifnar lúgur og eru loftsíur á innlofts lúgunni. Í botni gámsins er olíutankur sem á að duga vélinni til amk 24 tíma keyrslu.
Stærð: 3500x2100x2200 mm
Litur: Grænn RAL 6020
Heildarþyngd:
