top of page

D-Gen rafstöðvar

Sérfræðingar í rafstöðvum

Hjá Tól & Tæki flytjum við ekki bara inn rafstöðvar frá bestu framleiðendum heims á lægsta verði sem þekkist hér á landi, við veitum líka sérfræðiráðgjöf. Þegar kemur að rafmagni þá erum við á heimavelli. Tól & Tæki (Verkefnastjórnun og ráðgjöf) er löggiltur rafverktaki með áratuga reynslu af flestu því sem viðkemur rafmagni, raforkuframleiðslu og dreyfingu. Við getum komið að beinum ráðleggingum, hönnun á lausn, raflögn og tengingu rafstöðvanna. Ef þú ert bara að leita eftir rafstöð án frekari aðkomu okkar að þá er það einnig hægt. Vertu í sambandi og sjáum hvað við getum gert fyrir þig.

Cummins rafstöð í gám
Dísil rafstöð
Vararafstöð

Framleiðendur

Við flytjum inn rafstöðvar frá heimsins stærstu og þekktustu framleiðendum. Við flytjum þó ekki inn beint úr verksmiðju þeirra enda virkar rafstöðvabransinn sjaldnast þannig í dag. Vélin er framleidd í einni verksmiðju, rafalinn í annari, stjórnbúnaðurinn í þeirri þriðju og svo er þetta allt sett saman í þeirri fjórðu, ýmist á grind, í hljóðeinangraðri veðurkápu eða í sérsmíðuðum gám. Allt eftir þörfum hvers og eins. Vélarnar sem við flytjum inn koma allar frá Kína og eru framleiddar þar. Einhverjir hafa sett spurningamerki við að vera að kaupa vélar frá Kína og má það vel vera að það séu eðlileg viðbrögð þar sem að við þekkjum landið og framleiðsluna lítið hér á Íslandi. Við erum að flytja inn vörur frá Cummins, Stamford, Weichai og Leroy Somer. Allir fjórir eru með framleiðslu í Kína. Allt eru þetta framleiðendur í fremstu röð í heiminum.

Cummins þekkja flestir úr bandarískum jeppum og vinnuvélum og þá ekki síst 5,9 lítra dísil sleggjuna frá þeim. Cummins er í dag stærsti erlendi dísilvélaframleiðandinn í Kína með verksmiðjur á nokkrum stöðum. Umrædd 5,9 lítra ásamt 3,9 og 6,7 ofl er framleidd í verksmiðju í Xiangyang í Hubei héraði.

Cummins er eigandi Stamford og mætti segja að Stamford aftan á Cummins vél sé official combo frá Cummins þegar kemur að rafstöðvum. Stamford rafalarnir eru framleiddir í Wuxi í Kína.

Þegar kemur að minni vélum hættir Cummins að vera best optimeraða lausnin þar sem að þeir framleiða ekki minni mótora en 3,9 lítra vélina í Kína. Þá höfum við tekið þann pólinn í hæðina að taka inn Weichai vélar. Weichai er dísilvélaframleiðandi í eigu kínverska alþýðuveldisins og er í dag stærsti dísilvélaframleiðandi í heimi. Weichai er stærsti einstaki hluthafi Deutz með um 25% hlut og eru margar þeirra vélar byggðar á Deutz grunni sem hefur verið þróaður lengra. Weichai setti heimsmet í varmanýtingu í dísilvél árið 2020 með 50,23% nýtingu og hafa svo bætt það met ár frá ári. Í apríl 2024 var metið þeirra komið í 53,09%. Weichai er ekkert Kína drasl. Weichai eru alvöru vélar og það á enginn að þurfa að vera hræddur við að eiga eina slíka.

Leroy Somer er rafalaframleiðandi sem hefur síðustu 50 árin verið standardinn sem aðrir hafa barist um að komast á. Í dag er Leroy Somer í eigu Nidec í Japan. Framleiðslan er þó alþjóðleg og eru þeir með framleiðslu víða um heiminn, meðal annars í Fuzhou í Kína þaðan sem okkar rafalar koma. Leroy Somer eru það vinsælir rafalar í dísilrafstöðvum að það hamlar framleiðslu margra hve langur afgreiðslutíminn er frá þeim þar sem að þeir hafa ekki náð að halda í við eftirspurn í mörg ár.

Við erum svo að lokum í sambandi og samstarfi við stóra samsetningarverksmiðju í Weifang í Kína sem "smíðar" og setur saman rafstöðvarnar fyrir okkur.

Markmiðið er að keyra á þessum fjórum stóru "efstu hillu" framleiðendum og tryggja þannig vöru í hæsta gæðaflokki. Eins og sést á verðinu að þá er það ekki ýkja hátt á vélunum okkar. Hvernig kemur það til? Við teljum okkur vita svarið, lægri álagning.

Hafðu samband og við getum farið yfir þetta saman.

bottom of page