top of page

Hvað/Hver eru Tól & Tæki

Að hrökkva eða stökkva? Þegar við ákváðum að byrja með Tól & Tæki var það síður en svo einföld ákvörðun. Verkfæramarkaðurinn á Íslandi hefur til margra ára verið þjónustaður af stórum fyrirtækjum sem þekkt eru um allt land með birgja og vörumerki sem margir kannast við. Samþjöppun á eignarhaldi hefur gert það að verkum að margar af þessum verslunum eru í eigu sömu aðila. Verð hefur hækkað og ekki einfalt fyrir hinn venjulega einstakling að verða sér úti um gæða verkfæri og búnað á skikkanlegu verði.

Hvatinn að stofnun Tól & Tæki var því að vissu leyti kominn frá því að eigendum fannst að vöruverð gæti verið mun lægra án þess að gefa eftir kröfur um gæði. Með minni yfirbyggingu og góðu vali á búnaði hlyti þetta að vera hægt, eða hvað?

Vöruúrval Tól & Tæki mun líklega seint jafnast á við það sem stóru verslanirnar búa yfir enda er það ekki markmiðið. Vöruúrval verður lítið til að byrja með en mun aukast jafnt og þétt. Markmiðið er að geta boðið ákveðna vöruflokka á betra verði en almennt hefur þekkst á markaðnum án þess að fórna gæðum.

Tól & Tæki verður ekki rekið sem verslun þar sem að hægt er að kíkja við og skoða heldur eingöngu sem netverslun. Við reynum þó að verða við óskum um að skoða vörur sé leitað eftir því.

Markmiðið er að veita það mikla og góða upplýsingagjöf um vörurnar að neytandinn sjái ekki þörf á að gera sér ferð í að skoða vöruna heldur geti treyst því sem hann sér og les og pantað á netinu. Þá er annaðhvort hægt að sækja hana til okkar eða fá hana senda.

Sé kaupandi ekki öruggur og vilji frekari upplýsingar munum við gera okkar til að veita betri upplýsingar með myndsímtölum eða öðru til að sýna vörurnar enn betur. Tól & Tæki er í eigu okkar hjóna, er staðsett á Selfossi þar sem við búum og höfum aðstöðu fyrir lager. Við erum með sterka samstarfsaðila þegar kemur að því að senda vörur um allt land og því ætti sendingatími ekki að vera lengri en almennt gengur og gerist.

Við erum með þér í liði af því að við erum ekkert annað eða meira en almennir neytendur eins og þú.

Stofnendur Tól og Tæki

Markmið okkar

Við hjá Tól & Tæki höfum það skýra markmið að skila þjónustu sem stenst allar kröfur – ekki bara í dag, heldur alltaf. Gæði og áreiðanleiki eru grunnstoðir í allri okkar starfsemi, og við vinnum markvisst að því að tryggja að viðskiptavinir okkar finni alltaf fyrir öryggi, trausti og fagmennsku í hverju skrefi.

Gæði þjónustu

  • Við leggjum áherslu á nákvæm vinnubrögð, faglega ráðgjöf og skjót svörun.

  • Við sjáum til þess að viðskiptavinurinn fái skýrar upplýsingar, raunhæfar tímalínur um afhendingu og þjónustu sem stenst væntingar – eða fer fram úr þeim.

Áreiðanleiki í öllum samskiptum

  • Tól & Tæki stendur við orð sín, afhendingartíma og loforð.

  • Við veljum eingöngu birgja og framleiðendur sem uppfylla strangar kröfur um gæði, CE-vottun og rekstraröryggi.

  • Við tryggjum að öll tæki og búnaður sem við afhendum hafi verið prófaður, sannreyndur og tilbúinn til notkunar strax frá fyrsta degi.

traust.png
bottom of page