Skilmálar
Kaup stefna
Kaup/Pöntun:
Pöntun á vöru er bindandi þegar greitt hefur verið fyrir hana eftir að hafa annað hvort fari í gegnum greiðslukerfi vefsíðu Tól & Tækis eða eftir að greitt hefur verið með millifærslu eða öðrum leiðum fyrir vöru. Með greiðslu eru viðskiptin staðfest af hálfu beggja aðila.
Seljandi er bundinn af því að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að ekki sé um raunveruleg kaup að ræða og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar.
Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum samkvæmt lögum um neytendakaup og gilda þá skilmálar um skil og skipti ef greiðsla hefur farið fram.
Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef að kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst og yfirfara að allt sé rétt sem þar kemur fram.
Upplýsingar:
Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.
Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef að varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað í staðinn. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.
Verð:
Verð geta tekið breytingum hjá seljanda vegna ýmissa þátta. Verðhækkanir sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu eða nótu.
Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir kaup endanlega. Þar er tekinn fram allur kostnaður við pöntun svo sem, sendingu, VSK og annað sem gæti fallið til.
Greiðsla:
Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu, reiðufé eða greiðslukorti. Ef greitt er með greiðslukorti er upphæðin skuldfærð við greiðslu á vef. Ef greiðsla fyrir vefpöntun berst ekki innan 8 daga, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni. Ef greitt er með bankamillifærslu eru pöntun sett í tiltekt þegar millifærsla hefur verið staðfest.
Fyrir millifærslur skal leggja inn á eftirfarandi reikning
Verkefnastjórnun og ráðgjöf ehf
kt: 441125-0380
rn: 0357-26-002715
Sendið kvittun á verkograd@gmail.com
Greiðsla með reiðufé er eingöngu í boði ef vara er sótt til okkar.
Skila og skipta stefna
Skil:
Við bjóðum uppá 14 daga skilarétt á öllum keyptum vörum í vefverslun okkar.
Kaupandi getur skilað vöru keyptri af seljanda innan 14 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda að fullu. Vara þarf að vera í upprunalegu ástandi ásamt umbúðum við skil.
Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé í lagi við skil.
Seljandi áskilur sér rétt til þess að koma í veg fyrir alla misnotkun á 14 daga skilarétti.
Kaupnóta er skilyrði fyrir vöruskilum og fæst vara ekki skilað né endurgreidd án þess að nóta fylgi vöru.
Vöru skal skilað til seljanda á kostnað kaupanda.
Í boði er að skipta vöru fyrir aðra.
Afhending
Afhending:
Vörur eru teknar saman samdægurs og þær eru pantaðar og greiddar. Afgreiðslutími ætti ekki að vera lengri en einn dagur og er miðað við að pöntun sé komin til flutningsaðila innan sólahrings frá pöntun miðað við virka daga. Vörur eru eingöngu sendar innan Íslands. Sendingatími getur verið misjafn eftir því hvaða flutningsleið er valin en alla jafnan ætti vara að komast á áfangastað á 2-5 dögum.
Í boði er að velja einhverja af þeim sendingaleiðum sem við bjóðum upp á eða að koma til okkar og sækja vörurnar.
Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent er á ábyrgð kaupanda.
Skoðunarskylda:
Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunina, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samvkæmt vörulýsingu og ógallaðar.
Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 14 daga. Eftir 14 daga fellur niður sá tímarammi sem kaupandi hefur til að skila inn kvörtun vegna vörukaupanna vegna fyrrnefndra ástæðna. Um ábyrgð gilda aðrir skilmálar.
Úrbætur:
Seljandi mun bregðast við eftir aðstæðum hverju sinni vegna kvartana í tengslum við pantanir. Ef eitthvað vantar upp á eða ef vara er ekki eins og hún á að vera verður bætt þar úr með annaðhvort nýrri vöru, viðgerð, endurgreiðslu eða öðru sem semst um á milli aðila.
Réttur við galla eða vöntun
Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.
Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan 14 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins.
Ábyrgðir
Almenn ábyrgð á verkfærum
Öll rafmagnsverkfæri og verkfærapakkar sem seldir eru hjá Tól & Tæki koma með staðlaðri 12 mánaða ábyrgð.
Hún nær yfir:
-
Framleiðslugalla
-
Efnisgalla
-
Bilun sem rekja má til galla í samsetningu
Viðskiptavinur þarf aðeins að skila inn verkfærinu til okkar til mats – og við tökum við boltanum þar. Ef um galla er að ræða bætum við úr.
Ábyrgð gildir ekki ef um eftirfarandi er að ræða:
-
Verkfærið ber merki um mikla eða óhóflega notkun.
-
Verkfærið ber merki um að hafa fallið úr hæð.
-
Verkfærið hefur verið beitt óhóflegu álagi
-
Eðlilegt slit
Seljandi áskilur sér rétt til að meta í samráði við framleiðanda hvort verkfæri falli undir ábyrgðarskilmála eða ekki, telji kaupandi að ábyrgð eigi við.
Ábyrgð á dísilrafstöðvum
Dísilrafstöðvar frá V&R eru afhentar með framlengdum ábyrgðarskilmálum frá framleiðanda í 12 mánuði eða 1.000 klst, hvort sem kemur fyrr.
Ábyrgðin nær yfir:
-
Vél (Cummins / Weichai)
-
Rafalar (Stamford, Leroy Somer)
-
Stýringar (SmartGen)
-
Allir meginíhlutir rafstöðvarinnar
Tól & Tæki tryggir að allar okkar rafstöðvar séu CE-vottaðar, uppfylli evrópska staðla og séu prófaðar áður en þær yfirgefa verksmiðju.
Skilyrði og undantekningar
Til að ábyrgð gildi þarf:
-
Reglubundið viðhald samkvæmt þjónustubók
-
Að einungis vottaðir varahlutir séu notaðir
-
Að búnaður sé nýttur samkvæmt leiðbeiningum
Ábyrgð nær ekki yfir:
-
Slit vegna notkunar
-
Óviðeigandi meðferð eða breytingar
-
Skemmdir vegna utanaðkomandi áhrifa (vatnstjón, ryk, óviðeigandi geymsla o.s.frv.)
Hvert atriði sem kemur upp verður metið fyrir sig.
Öryggi upplýsinga og áreiðanleg meðferð gagna
Við hjá Tól & Tæki tökum öryggi og trúnað við viðskiptavini alvarlega. Allar upplýsingar sem þú veitir okkur eru meðhöndlaðar af kostgæfni, í samræmi við gildandi lög og bestu starfsvenjur í gagnavörn og upplýsingatækni.
Persónuvernd
-
Við söfnum aðeins þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að afgreiða pantanir, tryggja ábyrgðir og veita faglega þjónustu.
-
Gögn eru aldrei afhent þriðja aðila nema það sé nauðsynlegt til afhendingar, þjónustu eða vegna lagalegrar skyldu.
-
Við geymum upplýsingar á öruggum kerfum og höldum þeim ekki lengur en lög og verkefni krefjast.
-
Þú hefur alltaf rétt á að fá aðgang að eigin gögnum, óska eftir leiðréttingu eða eyðingu.
Öryggi
-
Allar okkar vörur uppfylla viðeigandi evrópska öryggisstaðla og eru CE-vottaðar þar sem það á við.
-
Rafstöðvar, verkfæri og búnaður eru prófuð áður en þau fara til viðskiptavina.
-
Við leggjum áherslu á réttan rekstur og afhendum skýrar leiðbeiningar um notkun, viðhald og öryggisatriði eftir óskum til að tryggja rétta og örugga meðhöndlun.
Við stöndum með þér
Markmið okkar er að tryggja að bæði gögn og búnaður séu í öruggum höndum – frá fyrstu samskiptum til lokafrágangs. Hjá Tól & Tæki færðu ekki bara vöru, þú færð traustan samstarfsaðila sem leggur áherslu á öryggi, fagmennsku og heiðarleika.
Traust viðskiptavina
Tól & Tæki leggur áherslu á gæði, áreiðanleika. Þess vegna bjóðum við ábyrgðir sem eru bæði skýrar og sterkar – þannig að þú getir keypt hjá okkur verkfæri og búnað áhyggjulaust.
Tól & Tæki þjónustuloforð
Við stöndum með okkar viðskiptavinum frá fyrsta degi. Ef upp kemur bilun eða spurning:
-
Við bregðumst hratt við
-
Úrvinnsla ferli er einföld og gegnsæ
-
Við útvegum varahluti og gerum viðkomandi búnað tilbúinn aftur í notkun eins fljótt og hægt er