Hversu góð eru FIXTEC verkfæri í raun og veru?
Updated: Sep 24
Þegar fólk sér FIXTEC verkfæri í fyrsta skipti kemur oft sama spurningin upp:
Geta verkfæri á þessu verði í alvörunni verið góð?
Það er eðlileg spurning. Flestir þekkja aðeins stóru verkfæramerkin. FIXTEC er hins vegar mun minna þekkt á Íslandi – þótt framleiðandinn hafi verið í verkfærabransanum í meira en tvo áratugi.
Svarið er því aðeins áhugaverðara en „þetta eru ódýr verkfæri“.
FIXTEC er kínverskt verkfæramerki frá EBIC Tools, fyrirtæki sem var stofnað árið 2003 og framleiðir mikið úrval rafmagnsverkfæra, handverkfæra og búnaðar fyrir bæði heimilisnotkun og atvinnumarkað. Fyrirtækið skiptir vörulínum sínum meðal annars í DIY, semi-industrial og industrial flokka.
En það sem skiptir okkur mestu máli er auðvitað ekki hvað stendur í bæklingnum.
Spurningin er einfaldlega: Hvað færðu fyrir peninginn?

FIXTEC er ekki að reyna að vera ódýrasta mögulega verkfærið en er það samt í flestum tilfellum
Það er mikilvægt að gera greinarmun á ódýrum verkfærum og lélegum verkfærum.
Mjög ódýr verkfæri eru oft hönnuð með eitt markmið: að ná verðinu eins langt niður og hægt er. Þá getur verið sparað í mótorum, legum, gírum, rafhlöðum, rofum og jafnvel húsinu sjálfu.
FIXTEC hefur farið aðra leið.
Merkið leggur áherslu á að bjóða góð verkfæri á hagstæðu verði án þess að fórna gæðum.
Framleiðandinn segir verkfærin fara í gegnum gæða- og afkastaprófanir fyrir afhendingu og býður vörur fyrir mismunandi notkun, allt frá einfaldari heimilisverkfærum upp í verkfæri ætluð fyrir meiri og reglulegri notkun.
Það þýðir þó ekki að hvert FIXTEC verkfæri eigi að vera borið saman við dýrasta atvinnuverkfærið frá stærstu verkfæraframleiðendunum.
Það væri einfaldlega ósanngjarn samanburður.
Spurningin ætti frekar að vera:
Hversu mikið verkfæri fæ ég fyrir peninginn?
Og þar verður FIXTEC mjög áhugavert og stenst allan samanburð.

F20+ – eitt 20 V rafhlöðukerfi fyrir fjölda verkfæra
Einn stærsti kosturinn við FIXTEC er F20+ 20 V rafhlöðukerfið.
Sama rafhlaðan getur gengið á fjölbreytt verkfæri innan kerfisins. Þar má meðal annars finna:
Borvélar og skrúfvélar
Högglykla
Slípirokka
SDS-borvélar
Hjólsagir og stingsagir
Tifsagir
Blásara
Garðverkfæri
Ljós og ýmis önnur verkfæri
Þetta skiptir miklu máli.
Þegar búið er að kaupa rafhlöður og hleðslutæki þarf ekki að kaupa nýtt rafhlöðusett með hverju verkfæri. Þá verður sérstaklega hagkvæmt að bæta við verkfærum eftir því sem þörfin eykst.
FIXTEC hefur byggt þetta kerfi hratt upp og framleiðandinn býður nú mjög breitt úrval verkfæra sem byggja á sama 20 V kerfinu.
Kolalausir mótorar skipta máli
Flest FIXTEC verkfæri nota brushless – eða kolalausa – mótora.
Kolalaus mótor hefur ekki hefðbundin kol sem slitna við notkun. Stýring mótorsins er rafræn og tæknin getur meðal annars gefið góða nýtni, minni hitamyndun og minna viðhald en hefðbundin kolamótorhönnun.
Þetta er sama grunntækni og hefur orðið ráðandi í betri rafhlöðuverkfærum hjá stóru verkfæraframleiðendunum.
Það eitt að verkfæri sé brushless segir auðvitað ekki allt um gæði þess.
En þetta sýnir ágætlega hvers vegna nútíma verkfæri þurfa ekki lengur að kosta hundruð þúsunda króna til þess að skila mjög góðum afköstum.
Hvernig stendur FIXTEC gagnvart DeWalt, Milwaukee og Makita?
Hér þarf að vera sanngjarn.
Milwaukee, DeWalt, Makita og önnur stærstu atvinnumerkin hafa gríðarlega reynslu, umfangsmikil rafhlöðukerfi og margar vörulínur sem eru sérstaklega hannaðar fyrir mjög mikla daglega atvinnunotkun.
FIXTEC kostar hins vegar oft töluvert minna. Jafnvel 4-6 sinnum minna fyrir sambærileg verkfæri.
Þess vegna er ekki endilega rétt að spyrja:
„Er FIXTEC betra en Milwaukee?“
Betri spurning er:
„Hvað þarf ég að borga fyrir verkfæri sem uppfyllir mínar þarfir?“
Fyrir flesta notendur er svarið líklega að Fixtec sé yfirdrifið nógu góð verkfæri fyrir þá notkun sem notandinn ætlar þeim.
Heimiliseigandi sem er að gera upp hús, bóndinn sem þarf verkfæri í viðhaldið, jeppamaðurinn sem vill góð verkfæri í skúrinn eða jeppann og svo iðnaðarmaðurinn sem þarf ákveðin verkfæri reglulega getur fengið mikið fyrir peninginn með FIXTEC.
En hvað með Högglyklana?
Högglyklar eru líklega einn besti mælikvarðinn á það hversu langt rafhlöðuverkfæri hafa þróast.
FIXTEC býður nokkrar stærðir og afl flokka af 20 V kolalausum högglyklum. Framleiðandinn býður meðal annars gerðir í kringum 450, 550 og 800 og 1000 Nm, auk annarra útfærslna.
Það gerir notandanum kleift að velja verkfæri eftir raunverulegri þörf í stað þess að kaupa einfaldlega stærsta og dýrasta verkfærið.
Fyrir dekkjaskipti, viðgerðir á bílum, vinnu við landbúnaðartæki og almenna verkstæðisvinnu getur góður rafhlöðu högglykill sparað ótrúlega mikinn tíma.

Kínverskt þýðir ekki sjálfkrafa lélegt
Þetta er kannski stærsti misskilningurinn þegar kemur að verkfærum.
Mjög stór hluti verkfæra og íhluta í verkfærum heimsins er framleiddur í Kína og öðrum Asíulöndum. Líka stóru þekktu merkin.
Upprunalandið eitt og sér segir því lítið um gæði vörunnar.
Það sem skiptir meira máli er hvernig varan er hönnuð, hvaða íhlutir eru notaðir, hvaða kröfur eru gerðar til framleiðslunnar og hvernig gæðaeftirliti er háttað.
EBIC Tools hefur starfað frá árinu 2003 og FIXTEC vörur eru seldar á fjölmörgum mörkuðum í öllum heimsálfum. Fyrirtækið framleiðir þúsundir vörutegunda og tilgreinir meðal annars CE, GS og RoHS samræmi fyrir viðeigandi vörur og markaði.
FIXTEC er því ekki nafnlaust verkfæri sem birtist skyndilega á netinu og hverfur svo aftur.
Þetta er rótgróið verkfæramerki með stórt og vaxandi vöruframboð.
Fyrir hvern er FIXTEC?
Við teljum FIXTEC sérstaklega áhugavert fyrir fólk sem vill góð verkfæri án þess að greiða aukalega fyrir eitt þekktasta vörumerkið á markaðnum.
Það getur verið:
Húseigandi sem vill eiga almennileg verkfæri.
Fólk sem er að byggja eða gera upp.
Bændur og aðrir sem þurfa verkfæri reglulega.
Bíla- og jeppaáhugafólk.
Verkstæði.
Iðnaðarmenn sem vilja hagkvæmt verkfærasett.
Fyrirtæki sem þurfa mikið magn verkfæra án þess að kostnaðurinn fari úr böndunum.
Og einn stærsti kosturinn kemur þegar safnið stækkar.
Þegar þú átt nokkrar F20+ rafhlöður geturðu keypt næsta verkfæri án rafhlöðu og hleðslutækis og þannig lækkað kostnaðinn enn frekar.
Svo – eru FIXTEC verkfæri góð?
Stutta svarið er:
Já – tvímælalaust. Miðað við verðið eru FIXTEC verkfæri mjög áhugaverður kostur fyrir flesta.
Við myndum hins vegar aldrei halda því fram að hvert einasta FIXTEC verkfæri sé „betra“ en samsvarandi verkfæri sem kostar tvisvar, þrisvar eða jafnvel sex sinnum meira.
Það er ekki punkturinn.
Styrkur FIXTEC liggur fyrst og fremst í hlutfallinu milli verðs, gæða og afkasta.
Þú færð nútímaleg verkfæri, öflugt 20 V rafhlöðukerfi, mikið úrval og möguleika á kolalausum verkfærum án þess að þurfa að fara í verðflokk dýrustu atvinnumerkjanna.
Fyrir mjög marga er það einfaldlega skynsamlegra.
FIXTEC verkfæri á Íslandi
Tól og tæki býður upp á vaxandi úrval af FIXTEC verkfærum á Íslandi, þar á meðal 20 V F20+ rafhlöðuverkfæri, handverkfæri og ýmsan verkstæðisbúnað.
Markmiðið okkar er einfalt:
Að bjóða góð verkfæri á verði sem meikar sens.
Skoðaðu úrvalið af FIXTEC verkfærum hjá Tól og tæki og berðu saman verð, afl og eiginleika áður en þú ákveður hvað hentar þér.



Comments